Hluthafafundur Samson eignarhaldsfélags ehf. hefur í dag samþykkt breytingu á samþykktum félagsins þannig að tilgangur þess er nú almenn fjárfestingarstarfsemi. Fyrir breytinguna var tilgangur félagsins takmarkaður við eignarhald á hlutabréfum í Landsbanka Íslands hf.

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt fyrrgreinda breytingu, en Samson eignarhaldsfélag ehf. er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins sem eigandi virks eignarhlutar í Landsbanka Íslands hf.