Heikki Niemelä forstjóri Kaupþings banka í Finnlandi hefur verið ráðinn í nýtt starf innan Kaupþings banka samstæðunnar og mun flytjast til Lundúna, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tommi Salunen hefur verið ráðinn forstjóri Kaupthing Bank Oyj, dótturfélags Kaupþings banka, í Finnlandi og tekur við starfinu þann 1. júlí.

Í tilkynningunni segir að Tommi Salunen hafi mikla starfsreynslu í fyrirtækjaráðgjöf, sérstaklega við samruna og yfirtökur, yfirtökufjármögnun og í verkefnum tengdum óskráðum fyrirtækjum. Hann var áður framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Nordea í Helsinki.

Pia Michelsson hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Kaupthing Bank Oyj. Hún var áður framkvæmdastjóri eignastýringar. Pia mun einnig bera ábyrgð á þróun á þjónustu við alþjóðlega viðskiptavini.

Þá hefur Ari Korhonen verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar bankans í Finnlandi. Hann starfaði áður sem fjárfestingastjóri (e. Chief Investment Officer) hjá Etera lífeyris- og tryggingarfélaginu í Helsinki.