Sævar Þór Jónsson héraðsdómslögmaður hefur selt 35% eignarhlut sinn í bílaleigunni Lotus Car Rental ehf.  Sævar Þór hefur á síðastliðnum árum unnið að uppbyggingu félagsins. Kaupverð var ekki gefið upp.

Sævar Þór starfar sem héraðsdómslögmaður og er einn af eigendum Lögmanna Sundagörðum.