Breytingar hafa orðið á yfirstjórn fjármálatæknifyrirtækisins Alva en það á og rekur Netgíró, Aktiva og Inkasso ásamt því að vera með töluverða starfsemi erlendis.

Hrafn Árnason hefur tekið við nýju starfi sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Alva og mun hafa yfirumsjón með allri viðskiptaþróun hjá Alva og þremur dótturfélögum þess, Netgíró, Inkasso og Aktiva.  Þá verður Hrafn áfram framkvæmdastjóri Aktiva. Hrafn er með MBA gráðu frá Háskólanum í Edinborg (2007) og Cand. oecon í Viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands (1998).

Hrafn hefur umfangsmikla reynslu úr fjármálaheiminum en hann hefur síðustu 19 ár meðal annars verið framkvæmdastjóri hjá Landsbréfum og hjá Kaupþingi og forstöðumaður hjá Íslandsbanka.

Hrafn er í sambúð með Ingu Birnu Ragnarsdóttir framkvæmdastjóra og eiga þau 3 börn.

Helgi Björn Kristinsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Netgíró. Helgi Björn er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands (1992) og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík (2006).

Helgi Björn hefur undanfarinn áratug starfað hjá Íslandsbanka sem forstöðumaður og verkefnisstjóri en þar á undan var hann framkvæmdastjóri tekjusviðs 365 miðla, sölustjóri hjá Plastprent og Toyota,  auk þess að starfa við markaðsráðgjöf hjá PWC. Helgi Björn hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagasamtök og einnig kennt á framhaldskólastigi auk námskeiðshalds fyrir fyrirtæki og félagasamtök.

Helgi Björn er giftur Helgu Ólafs og eiga þau þrjú börn.

Í fréttatilkynningu frá Alva segir Skorri Rafn Rafnsson forstjóri félagsins:

Með þessum breytingum á yfirstjórn höfum við gert verkaskiptingu enn skýrari og styrkt félögin til muna. Skarpari áherslur í starfsemi þeirra er góður grunnur að undirbúningi að sókn félaganna á erlendum mörkuðum á komandi mánuðum.