Bob Jain, yfirmaður eignastýringar hjá Credit Suisse Group hefur yfirgefið bankann. Bankinn er nú að ganga í gegnum umbreytingarferli í kjölfar þess að nýr forstjóri, Tidjane Thiam, tók við í júlí sl.

Thiam hefur gert fjölmargar breytingar á æðstu stjórnendum bankans síðan hann tók við stöðunni en hann hefur dregið úr fjárfestingarstarfsemi bankans og aukið við eignastýringu bankans.

Bob Jain hafði starfað hjá bankanum í um tvo áratugi en hann hefur sinnt fjölda starfa innan bankans.