Gerðar hafa verið skipulagsbreytingar á skrifstofum Eflingar – stéttarfélags. Í tilkynningu frá félaginu segir að meginatriði breytinganna sé einfölduð skipting á verkefnum skrifstofunnar eftir sviðum og veruleg styrking á hlutverkum sviðsstjóra. Markmiðið sé að bæta þjónustu við félagsmenn.

Anna Gunnhildur Ólafsdóttir hefur tekið við starfi sviðsstjóra Félags- og þróunarsviðs stéttarfélagsins Eflingar. Með skipulagsbreytingum innan stéttarfélagsins hefur sviðið með höndum virkjun félagsmanna, fræðslu- og kynningarmál.

Anna Gunnhildur gegndi áður starfi framkvæmdastjóra Geðhjálpar. Þar áður starfaði hún hjá Reykjavíkurborg, lengst af á skrifstofu borgarstjóri og borgarritara.  Hún er með diplomu í opinberri stjórnsýslu frá HÍ, meistaragráðu í viðskiptum og stjórnun með áherslu á mannauðsmál frá HR, BA gráðu í íslenskum fornbókmenntum og fjölmiðlafræði og diplomu í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ.

Sylvía Ólafsdóttir hefur tekið við starfi sviðsstjóra Kjaramálasviðs. Með skipulagsbreytingum innan stéttarfélagsins hefur sviðið með höndum launakröfur fyrir félagsmenn og aðstoð vegna réttindamála.

Sylvía starfaði áður sem lögfræðingur og verkefnastjóri á fjármála- og rekstrarsviði Sjúkratrygginga Íslands og í alþjóðadeild sömu stofnunar. Þar áður starfaði hún sem verslunarstjóri hjá Samkaupum hf. Hún hefur einnig setið í stjórnum ýmissa félaga og nefnda og er virk í sjálfboðaliðastörfum. Hún er með ML gráðu í lögfræði, MA gráðu í skattarétti, B.Sc gráðu í viðskiptalögfræði og diplóma í samningatækni og sáttamiðlun.

Ingibjörg Ólafsdóttir hefur tekið við starfi sviðsstjóra Þjónustusviðs Eflingar sem sinna mun öllum þjónustutengdum erindum félagsmanna. Ingibjörg gegndi áður starfi sviðsstjóra á sviði starfsendurhæfingar Eflingar og Virk.

Ingibjörg er viðurkenndur bókari, með MS í viðskiptafræði frá HÍ og B.Sc. í sjúkraþjálfun.