Kolbeinn Friðriksson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf., hefur sagt starfi sínu lausu hjá félaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var til kauphallarinnar fyrir hádegi í dag.

Kolbeinn mun þó áfram sinna starfinu þar til að eftirmaður hefur verið ráðinn. Starfið mun vera auglýst á næstu misserum.