Agla Elísabet Hendriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Glitnis sjóða. Agla hefur síðustu ár leitt skuldabréfastýringu Glitnis sjóða og mun gera það áfram.

Agla hefur unnið hjá bankanum frá 1994. Er stjórnmálafræðingur frá HÍ og löggiltur verðbréfamiðlari.

Eggert Þór Kristófersson, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Eignastýringar Glitnis og er jafnframt stjórnarformaður Glitnis sjóða sem er hluti af Eignastýringu Glitnis.