Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér greinargerð um breytingar á löggjöf á fjármálamarkaði sem standa fyrir dyrum á komandi löggjafarþingi.
Segir í tilkynningu frá ráðuneytinu að umbætur löggjafarinnar séu einar þær viðamestu sem ráðist hefur verið í á lagalegri umgjörð íslensks fjármálamarkaðar. Í þeirri vinnu séu allir meginhlutar markaðarins undir, þ.e. löggjöf um fjármálafyrirtæki, verðbréfamarkaði, vátryggingastarfsemi og greiðsluþjónustu, auk þess sem unnið er að breytingum á lífeyrisssjóðalöggjöf.
Vinnan hófst árið 2010 en fram kemur að nokkur ár muni líða þar til umbótunum verður að fullu lokið. Stærstu skrefin verði þó líklega tekin á yfirstandandi þingi þar sem lögð verða fram frumvörp um víðtækar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, innstæðutryggingar, fagfjárfestasjóði, vátryggingaþjónustu og fasteignalán.