Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gert samkomulag um breytingar á kjarasamningi er snýr að lífeyrismálum. Samningurinn er frá árinu 1995 og rekur uppruna sinn til samkomulags frá árinu 1969.

Helstu breytingar samningsins varða skipan og samsetningu stjórnarmanna, uppstillingarnefndir tilnefningaraðila, hámarkssetu í stjórn, hæfisreglur og hagsmunaárekstur.

Hlutverk uppstillingarnefnda verður að fjalla um hæfi einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. Tilnefningaraðilar skulu óska eftir starfskröftum hæfra einstaklinga til með fjölbreytta reynslu og þekkingu t.d. varðandi lífeyrismál, kjarasamninga, stjórnun, áætlanagerð og reikningshald, lögfræðileg málefni og fjármálamarkað. Úr þessum eru gerðar tillögur um þá sem hæfastir eru taldir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn.

Þá var einnig undirritaður kjarasamningur um lífeyrismál milli VR annars vegar og Samtaka atvinnulífsins og Félags atvinnurekenda hins vegar sem lýtur einvörðungu að Lífeyrissjóði verzlunarmanna (LÍVE). Sá samningur er samhljóða kjarasamningi ASÍ og SA að öðru leyti en því að stjórn LÍVE skal skipuð átta fulltrúum sem skipaðir eru til tveggja eða fjögurra ára í senn að vali hvers samningsaðila.