Ingólfur Guðmundsson hefur verið ráðinn forstjóri Carbon Recycling International - CRI hf. og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Ingólfur Guðmundsson tók við stöðu forstjóra CRI í júní sl. en hann sat í stjórn félagsins frá árinu 2018. Ingólfur er rekstrarhagfræðingur og löggiltur verðbréfamiðlari með áralanga reynslu sem stjórnandi í innlendum fjármála- og rekstrarfyrirtækjum. Hann var einn af stofnendum iKorts og starfaði þar sem framkvæmdastjóri frá stofnun félagsins árið 2013. Ingólfur einnig setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og sjóða og situr nú meðal annars í stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna og stjórn Eyris Invest.

Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir er iðnaðarverkfræðingur og lauk jafnframt M.Sc. prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. prófi í orkukerfum og orkustjórnun frá School of Renewable Energy Science.

Margrét hóf störf við CRI árið 2015 og hefur setið í framkvæmdastjórn fyrirtækisins frá árinu 2017. Áður starfaði hún hjá Landsbankanum og Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns (nú Mannvit) með áherslu á stjórnun, fjármögnun og orkutengd verkefni. Hún hefur einnig setið í ýmsum ráðum og stjórnum í atvinnulífinu.