Með lögum var ákvæðum samkeppnislaga er varða samruna breytt í ljósi þeirrar reynslu sem komin var á beitingu áður gildandi ákvæða um samruna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Eftirlitið segir að með þessu hafi samrunareglur íslenskra samkeppnislaga verið styrktar um leið og þær voru færðar nær reglum EES- og EB- réttarins á sviðinu og tóku breytingarnar gildi þann 24. júní síðast liðinn.

Helstu breytingar sem felast í lagabreytingunum eru eftirfarandi:

  • Samruni kemur nú ekki til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann, sbr. 3. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga.
  • Veltumörk sem miðað er við þegar metið er hvort samrunar séu tilkynningarskyldir eru hækkuð, sbr. 1. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga.
  • Heimilt er nú að tilkynna um samruna með styttri tilkynningu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum svo sem ef þeir markaðir þar sem áhrifa samrunans gætir eru ekki tengdir, sbr. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga.
  • Ákvæðum um fresti til að taka ákvarðanir í samrunamálum hefur verið breytt, sbr. 17. gr. d samkeppnislaga.
  • Efnislegt mat Samkeppniseftirlitsins á samkeppnislegum áhrifum samruna tekur nú ekki eingöngu til þess hvort markaðsráðandi staða hafi orðið til eða styrkst heldur einnig til þess hvort samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, sbr. 17. gr. c samkeppnislaga.
  • Samkeppniseftirlitið getur nú tekið mál fyrir að nýju, hafi áfrýjunarnefnd eða dómstóll ógilt ákvörðun eftirlitsins sökum formgalla, sbr. 2. mgr. 17. gr. e samkeppnislaga.
  • Skilgreiningar á samruna og yfirráðum hafa verið færðar til samræmis við evrópskan samkeppnisrétt, sbr. 17. gr. samkeppnislaga.

Þá kemur fram að innan fárra daga munu taka gildi nýjar reglur Samkeppniseftirlitsins um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum til samræmis við breytt ákvæði samkeppnislaga er varða samruna sem settar verða á grundvelli samkeppnislaga.

Reglurnar munu verða birtar á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins um leið og þær öðlast gildi.

„Meginmarkmið þeirra reglna og viðauka með þeim eru að þær verði aðgengilegar og leiðbeinandi og að upplýsingar sem veita þarf við tilkynningu samruna séu fullnægjandi miðað við hið nýja efnislega mat sem lögin gera nú ráð fyrir,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.