Breytingar hafa átt sér stað á eignarhaldi fréttavefsins austurlandid.is en Einar Ben Þorsteinsson ritstjóri vefsins og annar af eigendum hans seldi hlut sinn í einkahlutafélaginu Íslensk fréttablöð í dag sem rekur Austurlandið.is.

Kaupandi er Hörður Ingólfsson frá Akureyri. Davíð Sigurðarson stofnandi vefsins er áfram helmings eigandi í fyrirtækinu og munu þeir félagar halda rekstri vefsins áfram sem og öðru því sem Íslensk fréttablöð ehf starfa að segir í frétt á vefnum.