VÍB, eignastýringaþjónusta Íslandsbanka, hélt fund síðastlðinn fimmtudag um íslenska skattkerfið og framtíð þess. Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands flutti framsögu og tók í kjölfarið þátt í umræðum með þeim Guðrúnu Björgu Bragadóttur hjá KPMG og Birni Berg Gunnarssyni, fræðslustjóra VÍB.

Í erindi sínu talaði Björn um hvaða áhrif skattar hefðu á hegðun fólks og lífskjör og nefndi í því tilliti margt í íslensku skattkerfi sem hefur neikvæð áhrif sé það skoðað í því ljósi. Þá nefndi hann að jaðarskattur væri of hár og drægi úr hvata fólks til að afla sér frekari tekna. Að sama skapi nefndi hann að skattlagning fjármagnstekna á nafnvirði drægi úr hvata fólks til sparnaðar og yki jafnvel áhættusækni. VB Sjónvarp náð tali af Birni að fundinum loknum.