Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur breytt skipan samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga, með það fyrir augum að stuðla að meiri sátt og víðtækara samkomulagi um frekari uppbyggingu íslensks landbúnaðar. Sérstaklega er horft til þess að auka vægi umhverfis- og neytendasjónarmiða í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar og fyrrverandi alþingismaður, verður formaður hópsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytissins .

Fulltrúum í hópnum er fjölgað úr tólf í þrettán. „Umhverfisráðherra tilnefndir einn fulltrúa og Félag atvinnurekenda einn, til viðbótar þeim sem þegar voru skipaðir samkvæmt tilnefningu. Þá hefur skipan þriggja fulltrúa af fimm sem fyrri ráðherra skipaði án tilnefningar verið afturkölluð.  Í þeirra stað hefur ráðherra skipað Brynhildi Pétursdóttur, fyrrverandi alþingismann og starfsmann Neytendasamtakanna og Svanfríði Jónasdóttur,“ segir í tilkynningunni.

Það er mat Þorgerðar Katrínar að mikilvægt sé að ná víðtækri samvinnu og sátt við breytingar á búvörusamningi og búvörulögum. Stefna ríkisstjórnarinnar er sú að breið aðkoma hagsmunaaðila að endurskoðun búvörusamningsins sé nauðsynleg. Miðað er við að endurskoðunin ljúki ekki síðar en árið 2019.

Nýjan samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga skipa:

  • Svanfríður Jónasdóttir, formaður (skipuð af ráðherra)
  • Brynhildur Pétursdóttir (skipuð af ráðherra)
  • Elín Margrét Stefánsdóttir (skipuð af ráðherra)
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir (skipuð af ráðherra)
  • Þórunn Pétursdóttir (Umhverfisráðherra)
  • Páll Rúnar Mikael Kristjánsson (Félag atvinnurekenda)
  • Róbert Farestveit (Alþýðusamband Íslands)
  • Ólafur Arnarsson (Neytendasamtökin)
  • Andrés Magnússon (Samtök atvinnulífsins)
  • Sindri Sigurgeirsson (Bændasamtök Íslands)
  • Björgvin Jón Bjarnason (Bændasamtök Íslands)
  • Elín Heiða Valsdóttir (Bændasamtök Íslands)
  • Helga Jónsdóttir (Bandalag starfsmanna ríkis og bæja)