Frá og með deginum í dag breytist opnunartími viðskipta í Kauphöllinni, en í dag tekur vetratími gildi í Evrópu.

Kauphöllin opnar fyrir viðskipti með hlutabréf kl. 10 sem fyrr en lokar nú kl. 16.23 – eða einni klukkustund síðar en venjan er yfir sumartímann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.