Brim hf. sjávarútvegsfyrirtæki Guðmundar Kristjánssonar hefur gengið frá greiðslu til félaga í eigu Kristjáns Loftssonar, á 21,7 milljarða króna fyrir rúmlega 34% í félaginu.
Eins og Viðskiptablaðið greindi fyrst frá seldu félögin Vogun hf. og Fiskveiðihlutafélagið Venus ríflega 30% hlut sinn í HG Granda til Brims hf.
Bæði félögin eru að stærstum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar eiganda Hvals hf, en auk þesss seldi Halldór Teitsson 3,2% hlut sinn í HB Granda til félagsins. Aðalfundur HB Granda fer fram í dag, og þar hverfur Kristján Loftsson úr stjórn eftir að hafa verið fyrst kjörinn í stjórn félagsins árið 1988.
Fleiri fréttir um málefni HB Granda og Brim:
- 1. maí 2018 - Sjö bjóða sig fram í stjórn Granda
- 26. apríl 2018 - Hvalvinir krefjast enn sniðgöngu Granda
- 21. apríl 2018 - Grandi rauk upp
- 20. apríl 2018 - 20% alls kvóta í fyrirtækjum Brims
- 20. apríl 2018 - Kaupin mynda yfirtökuskyldu á HB Granda
- 18. apríl 2018 - Selur í Granda fyrir 21,7 milljarð
- 2. mars 2018 - HB Grandi heldur áfram að lækka
- 1. mars 2018 - HB Grandi lækkar um 6,6%
- 28. febrúar 2018 - HB Grandi hagnast um 3 milljarða