Brim hf. (áður HB Grandi) hefur gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum í Hafnarfirði. Annað er Fiskvinnslan Kambur hf. sem rekur útgerð og fiskvinnslu og útgerðarfélagið Grábrók ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu Brims til Kauphallar Íslands. Þar segir jafnframt:

Fiskvinnslan Kambur gerir út krókabátinn Kristján HF 100 sem var smíðaður í Trefjum hf. í Hafnarfirði á síðasta ári og er búinn öllum nýjasta tækjabúnaði til veiða og aflameðferðar. Honum fylgir um 2.000 tonna krókaaflamark að mestu í þorski. Þá rekur fyrirtækið tæknivædda fiskvinnslu í eigin húsnæði við Óseyrarbraut í Hafnarfirði sem er búin margvíslegum hátæknibúnaði m.a. nýrri vinnslulínu og vatnsskurðarvél frá Völku hf. sem var tekin í notkun á síðasta ári. Kaupverðið nemur 2.3 milljörðum króna og verður greitt að hluta með hlutabréfum í Brimi hf. sem eru í eigu félagsins og nema um 1% af heildarhlutafé Brims að verðmæti um 835 milljónir króna. Grábrók ehf. gerir út krókabátinn Steinunni HF 108 sem var smíðaður árið 2007. Honum fylgir um 850 tonna krókaflamark að mestu í þorski. Kaupverðið er 772 milljónir króna.

Í frétt Vísis af málinu kemur fram að fyrirtækin eru bæði í eigu Hjálmars Þórs Kristjánssonar, bróður Guðmundar.. Fyrirtækið á Grábrók að fullu, er eini hluthafi með 100% hlut, en á 39% hlut í Kambi, segir þar.

Samkomulagið er háð eðlilegum fyrirvörum m.a. um fjármögnun, samþykki stjórnar Brims hf. og samþykki Samkeppniseftirlits og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila.

Gangi kaupin eftir fer Brim yfir lögbundið kvótaþak í krókaaflamarki en hefur lögum samkvæmt 6 mánuði til að gera ráðstafanir sem koma félaginu undir það þak.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf.:

„Með þessum kaupum erum við að styrkja Brim sem alhliða fyrirtæki í sjávarútvegi. Við viljum efla starfsemi Brims samhliða því að við höfum styrkt stöðu okkar í markaðssetningu og sölu á vörum félagsins á erlendum mörkuðum. Við bætum núna við okkur þorskveiðiheimildum, tæknivæddum vinnslueiningum og mannauð sem gerir félagið betur í stakk búið til að takast á við erlenda samkeppni í vinnslu íslenskra sjávarafurða. Kambur verður rekinn áfram í húsnæði félagsins sem sjálfstætt dótturfélag Brims en við stefnum að góðu samstarfi með aukna sérhæfingu að markmiði þegar fram líða stundir.“