Tap útgerðarfélagsins Brim hf. árið 2016 nam 100 milljónum króna en árið 2015 var hagnaður þess rétt tæpar 630 milljónir króna. Á sama tíma jukust rekstrartekjurnar úr rúmum 9,8 milljörðum í tæpa 18,7 milljarða.

Í lok ársins námu eignirnar 59 milljörðum, eigið fé þess nam 22,7 milljörðum og eiginfjárhlutfallið var 38,5%.

Á árinu bættist Stilla útgerð ehf. við hluthafahópinn með tæplega 37% eignarhlut. Aðrir hluthafar eru Línuskip ehf. með 47%, Fiskines ehf. með 14,6% og Guðmundur Kristjánsson með 0,02%.