Brimborg býður nú alla nýja Citroën bíla með 5 ára ábyrgð.

„5 ára ábyrgð Citroën er mikilvægur þáttur í að styrkja samband okkar við Citroën eigendur. Í eigenda og þjónustuhandbók + viðauka við skilmála Citroën finnur þú greinargóða lýsingu á ábyrgðinni, skyldum Citroën og Citroën eigenda, upplýsingar um það sem ábyrgðin nær og nær ekki til, ábyrgð gagnvart gegnumtæringu, ábyrgð á varahlutum, takmörkun ábyrgðar, skýrslur um reglubundið viðhald, ryðvarnareftirlit, skýrslur um endurnýjun kílómetrateljara, síma- og netfangaskrá, upplýsingar um þjónustutíma deilda, auk annarra hagnýtra upplýsinga," segir í tilkynningu.

„Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með nýja Citroën bílinn í reglubundið þjónustueftirlit samkvæmt staðli framleiðanda. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan. sem kaupandi ber kostnað af."