Breska lággjaldaflugfélagið British Airways (BA) sagði frá því í gær að fyrirtækið hefði pantað fjórar nýjar Boeing þotur og væri það fyrsta skref þess í að endurnýja flugflota sinn fyrir marga milljarða Bandaríkjadala. Í fréttatilkynningu frá BA sagðist það búast við því að þoturnar yrðu afhentar í byrjun ársins 2009, auk þess sem fyrirtækið hyggst fá fjórar aðrar þotur ári síðar.