Breska flugfélagið British Airways mun bjóða upp á reglulegar ferðir til Íslands frá og með 25. október. Flogið verður alla miðvikudaga, föstudaga og sunnudaga og fara vélarnar í loftið frá Keflavík klukkan hálf fjögur seinni partinn og lenda við Heathrow flugvöll rétt um kvöldmatarleytið. Fréttavefurinn Túristi.is greinir frá.

Lægstu fargjöld British Airways héðan til Heathrow og tilbaka kosta í dag um 17.200 krónur (86 pund) að því segir í tilkynningu frá félaginu. Samkvæmt athugun Túrista er þó algengara að miðinn báðar leiðir sé á um 31 þúsund krónur en hjá Icelandair kosta ódýrustu farmiðarnir, báðar leiðir til Heathrow, næsta vetur um 40 þúsund krónur. Við ódýrustu fargjöldin hjá British Airways bætist farangursgjald.

Með tilkomu British Airways verða í boði allt að fjörtíu og fjórar brottfarir í viku frá Keflavíkurflugvelli til flugvallanna við höfuðborg Bretlands. Hafa ferðirnir meira en tvöfaldast síðustu ár því veturinn 2012 voru í boði 19 ferðir í viku.