British Airways eiga nú í samrunaviðræðum við spænska flugfélagið Iberia.

Í tilkynningu frá British Airways segir að bæði félögin hafi áhuga á samruna, en búist sé við því að samningaviðræður um hann taki nokkra mánuði.

British Airways á þegar 13,15% hlut í Iberia á meðan Iberia á 2,99% hlut í British Airways.

Iberia er stærsta flugfélag Spánar.