Viðskipti voru lífleg þegar Kauphöllin opnaði í morgun og það sem af er degi hefur úrvalsvísitalan hækkað um 1,21%. Hampiðjan hefur hækkað mest eða um 4,88% en bæði Kaupþing banki og FL Group hafa hækkað myndarlega.