Í byrjun næstu viku munu flugfélög þurfa að staðfesta umsóknir um afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli fyrir næsta vetur að því er Túristi greinir frá. Það ætti þá að koma í ljós á næstu vikum hve mikill samdráttur verður í flugi til landsins yfir vetrarmánuðina í kjölfar falls Wow air.

Eins og staðan er núna eru helstu brottfarartímarnir sem Wow air nýtti enn lausir, en eins og sagt var frá í fréttum í gær hafa innlendir og erlendir aðilar, með tengsl við Wow air og Ryanair, hafið undirbúning á stofnun nýs lággjaldaflugfélags hér á landi.

Einnig hefur þó komið fram að helstu verðmætin úr þrotabúi Wow air hafa þegar verið seld , sem og að Skúli Mogensen stofnandi félagsins kemur ekki að nýja félaginu.

Þrátt fyrir væntingar um að við gjaldþrot Wow myndu erlend félög fylla í skarðið sem og Icelandair hefur það ekki gengið eftir, bæði hafa erlend félög eins og Delta og easyJet skorið niður í flugáætlun sinni hingað til lands, sem og Icelandair lent í vanda við að halda sínum áætlunum vegna kyrrsetningar Boeing 737 Max véla sinna.