Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 110 þúsund í nýliðnum júlímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Brottfarir í júlí meira en tvöfölduðust frá sama mánuði í fyrra. Horfa þarf allt til febrúarmánaðar 2020 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í einum mánuði. Þetta kemur fram í frétt á vef Ferðamálastofu .

Frá áramótum hafa um 184 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er um 52% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega tæplega 387 þúsund.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júlí eða 46,6% brottfara. Á eftir þeim fylgja á eftir fylgja brottfarir Pólverja, sem voru 10,2% af heild, Þjóðverja með 7,9%, Breta með 5,2% og Frakka sem voru 3,6% af heildarbrottförum. Samtals voru brottfarir fimm stærstu þjóðerna 73,5%.

Brottfarir Íslendinga í júlí voru um 31 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um 13 þúsund. Brottfarir Íslendinga hafa líkt og brottfarir erlendra farþega ekki mælst svo margar frá því í febrúar 2020 en þá voru þær um 34 þúsund talsins.

Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 63.500 eða 41,3% færri en á sama tímabili í fyrra.

Flugfélögin Icelandair og Play hafa bæði birt flutningatölur fyrir júlímánuð. Heildarfjöldi farþega í millilanda- (brottfarir og komur) og innanlandasflugi hjá Icelandair jókst úr 88 þúsund í 219 þúsund milli ára. Farþegar Plau voru rétt undir tíu þúsund á fyrsta mánuði félagsins í fullum rekstri.