Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 195 þúsund í júnímánuði eða um 39 þúsund færri en í júní árið 2018, . Fækkun milli ára nemur 16,7%. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Ferðamálastofu.

Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5% og um 23,6% í maí.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júní eða 31% brottfara og fækkaði þeim um 35,1% milli ára.

Frá áramótum hafa 900 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 12,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í júní tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru 17 þúsund talsins eða 6,4% fleiri en í júní árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Breta, um tíu þúsund talsins og fækkaði þeim um 21,1%.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Kínverja (4,9% af heild), Pólverja (4,8% af heild), Frakka (4,4% af heild), Kanadamanna (4,3% af heild), Svía (2,9% af heild), Norðmanna (2,5% af heild) og Dana (2,2% af heild).

Ferðir Íslendinga utan

Um 64 þúsund Íslendingar fóru utan í júní í ár eða 9% færri en í júní 2018. Frá áramótum hafa 307 þúsund Íslendingar farið utan eða 4,9% færri en á sama tímabili í fyrra.