Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 120 þúsund í nýliðnum apríl eða um 27 þúsund færri en í apríl árið áður, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 18,5%. Greint er frá þessu á vef Ferðamálastofu .

Eins og mikið hefur verið fjallað um þá sigldi flugfélagið Wow air í þrot í lok marsmánaðar og því var apríl fyrsti fulli mánuðurinn án Wow air.

Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í apríl eða 35% brottfara en Bandaríkjamönnum fækkaði um 27% milli ára og Bretum um 31,5%. Frá áramótum hafa 578 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 7,9% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Bandaríkjamenn fjölmennastir

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í apríl í ár tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta, sem fyrr segir. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir, um 26 þúsund talsins, og brottfarir Breta komu þar á eftir en þær mældust um 15.600. Samtals voru brottfarir þessara tveggja þjóða 35% af heildarbrottförum.

Þjóðverjar voru þriðju í röðinni hvað fjölda brottfara varðar í apríl en þeir voru 7.600 talsins (6,3% af heild) og fækkaði þeim um 4,8% milli ára. Brottfarir Pólverja voru í fjórða sæti, um 7.300 talsins (6,1% af heild) og voru þeir 1,4% fleiri en árinu áður.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Frakka (4,1% af heild), Dana (3,6% af heild), Kanadamanna (3,4% af heild), Norðmanna (3,2% af heild), Spánverja (3,1% af heild) og Svía (2,9% af heild).

Ferðum Íslendinga fækkað lítillega

Þegar horft er til ferða Íslendinga þá fóru Íslendingar utan um 61 þúsund sinnum í apríl í ár, sem er 15,4% fjölgun frá apríl í fyrra. Frá áramótum eru utanferðir Íslendinga 185 þúsund talsins, sem er 1,8% fækkun frá sama tímabili í fyrra.