Brúarfoss, skip Eimskipafélagsins, kom til Ísafjarðar í morgun. Ísafjörður er viðkomustaður á nýrri strandleið félagsins sem tengir landsbyggðina beint við Færeyjar, Skotland, England og meginland Evrópu og óbeint inná Skandinavíu og Eystrasalt.

Í tilkynningu frá Eimskipi segir að Brúarfoss leggi úr höfn frá Ísafirði í kvöld á leið sinni til Akureyrar þar sem tekið verður á móti skipinu með viðhöfn á morgun, laugardag. Brúarfoss heldur síðan áfram á markaði erlendis með útflutningsvöru og sækir innflutningsvöru fyrir landsbyggðina.

Brúarfoss er 130 metra langt og 20 metra breitt gámaskip skipað íslenskri áhöfn. Það var smíðað árið 1992. Skipið er búið tveimur krönum sem gerir því kleift að hafa viðkomur í höfnum sem ekki eru búnar landkrönum. Brúarfoss getur borið allt að 724 gámaeiningar og er heildarafl véla skipsins 5.400 KW.