Eigendur Brúneggja ehf. óskuðu eftir því í dag að félagið yrði tekið til gjaldþrotameðferðar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Nær öll eggjasala stöðvaðist strax eftir að Kastljós RÚV fjallaði um starfsemina 28. nóvember sl. Tilraunir til að rétta hlut fyrirtækisins í óvæginni umfjöllun dagana á eftir báru ekki árangur og við blasti fljótlega að lífróður eigendanna myndi ekki duga til að halda fyrirtækinu gangandi nema í takmarkaðan tíma,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Nú hefur öllu starfsfólki fyrirtækisins verið sagt upp, þrátt fyrir að starfsstöðvar þess væru allar með fullt starfsleyfi frá Matvælastofnun var ákveðið að leggja niður starfsemi á Teigi og í Silfurhöll í Mosfellsbæ í janúar síðastliðnum, er einnig tekið fram. Aðstæður í gömlu fuglahúsunum þar gerðu mönnum erfitt fyrir með að uppfylla viðmið um loftgæði sem kveðið er á um í reglugerð um dýravelferð frá 2015.

„Eigendur Brúneggja harma þá vankanta í starfseminni sem fundið hefur verið að á liðnum misserum en harma ekki síður að þessi verði endalok fyrirtækisins. Nú er mál að linni,“ segir að lokum í tilkynningunni.