Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur fengið í hendur tillögur um hvernig styrkja megi íslenska geitfjárstofninn. Tillögurnar miða að því að auka framlag ríkis til að reyna að fjölga geitum hér á landi og koma í veg fyrir að þeim fækki.

Starfshópurinn hefur skilað fimm tillögum. Tillögurnar eru í stuttu máli eftirfarandi, samkvæmt tilkynningu á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis:

  1. Hópurinn leggur til að nú þegarverði auknu fé veitt til stofnverndar geitastofnsins með sérstöku framlagi ríkisins til erfðanefnd landbúnaðarins. Framlagið verði nýtt til að hækka verulega og afnema takmarkanir á því hversu margar geitur á hverju búi njóta stuðnings. Skilyrða þarf stuðning við þá sem taka þátt í skýrsluhaldi. Áætlað er að þetta muni kosta um  kr. 2 milljónir á ári.
  2. Hópurinn leggur til að við endurskoðun sauðfjársamnings (samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar dags. 25. janúar 2007 með síðari breytingum) verði innleitt sérstakt stuðningsform fyrir geitfjárrækt, sambærilegt þeim stuðningi sem veittur verður í sauðfjárækt. Í stuðningsaðgerðum þarf að vera hvati til þess að geitfjárræktarbú verði af þeirri stærð að vinnsla afurða sé möguleg.
  3. Hópurinn telur mikilvægt að haldið verði áfram uppbyggingu  á sæðisbanka með frystu hafrasæði sem styðja myndi við markvissa ræktun innan stofnsins en einnig þjóna sem öryggisnet ef illa færi. Söfnun sæðis þyrfti að fara fram á tveggja til þriggja ára fresti. Lagt er til að þessi tillaga komi til skoðunar við næstu endurskoðun búnaðarlagasamnings.
  4. Hópurinn telur mikilvægt að komið verði á fót rafrænni ættbók þar sem skrá mætti allar tiltækar upplýsingar um stofninn s.s. ættir, útlitseinkenni, afurðir,  sjúkdóma, vanhöld og o.fl. Ættbók er grunnur að ræktun og verndaraðgerðum og því að sæðingar skili árangri. Sambærileg ættbók er til staðar fyrir sauðfé.  Lagt er til að þessi tillaga komi til skoðunar við næstu endurskoðun búnaðarlagasamnings.
  5. Hópurinn leggur til að stuðlað verði að auknum rannsóknum á íslenska geitastofninum og afurðum hans með það fyrir augum að auka þekkingu á erfðafræðilegri stöðu stofnsins og sérstöðu afurða. Lagt er til að þessi tillaga komi til skoðunar við næstu endurskoðun búnaðarlagasamnings og sauðfjársamnings.