Bryndís Björnsdóttir
Bryndís Björnsdóttir
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Bryndís Björnsdóttir tekur við hálfu starfi kennara í markaðsfræðum við háskólann á Bifröst um áramót. Hún lauk meistaragráðu í stjórnun markaðssamskipta frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) árið 2006.

Bryndís hefur undanfarin fimm ár verið markaðsráðgjafi og birtingastjóri hjá Auglýsingamiðlun og mun starfa þar áfram samhliða kennslu á Bifröst.

Hún hefur einnig skrifað pistla í Viðskiptablaðið. Hún hefur starfað sem stundakennari í markaðsfræði á Bifröst.