Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi hittist í gærkvöldi og lagði fram nýjan lista. Á fundinum var til að mynda ákveðið að færa Bryndísi Haraldsdóttur í annað sæti. Jón Gunnarsson, sem lenti í þriðja sæti í prófkjörinu færðist niður um eitt sæti.
Við tilfærslurnar færðist Óli Björn Kárason niður og fjórða og Vilhjálmur Bjarnason í það fimmta. Karen Elísabet Halldórsdóttir skipar svo sjötta sætið.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá kjördæmisráði, er listinn í heild sinni eftirfarandi:
- Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Garðabæ
- Bryndís Haraldsdóttir, formaður bæjarráðs, Mosfellsbæ
- Jón Gunnarsson, alþingismaður, Kópavogi
- Óli Björn Kárason, ritstjóri, Seltjarnarnesi
- Vilhjálmur Bjarnason, alþingismaður, Garðabæ
- Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður, Kópavogi
- Vilhjálmur Bjarnason, formaður hagsmunasamtaka heimilanna, Mosfellsbæ
- Kristín Thoroddsen, flugfreyja og ferðamálafræðingur, Hafnarfirði
- Katrín Ósk Ásgeirsdóttir, háskólanemi, Hafnarfirði
- Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, laganemi og framkvæmdastjóri, Kópavogi
- Hrefna Kristmannsdóttir, jarðefnafræðingur og prófessor emeritus, Seltjarnarnesi
- Davíð Þór Viðarsson, viðskiptafræðingur og knattspyrnumaður, Hafnarfirði
- Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, kennari, Mosfellsbæ
- Unnur Lára Bryde, flugfreyja og bæjarfulltrúi, Hafnarfirði
- Guðmundur Gísli Geirdal, sjómaður, Kópavogi
- Þorgerður Anna Arnardóttir, aðstoðarskólastjóri, Garðabæ
- Bergur Þorri Benjamínsson, viðskiptafræðingur, Hafnarfirði
- Maríanna Hugrún Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, Kjós
- Hilmar Jökull Stefánsson, menntaskólanemi, Kópavogi
- Þórhildur Gunnarsdóttir, verkfræðinemi og handknattleikskona, Garðabæ
- Kristján Jónas Svavarsson, stálvirkjasmíðameistari, Hafnarfirði
- Sveinn Óskar Sigurðsson, framkvæmdastjóri, Mosfellsbæ
- Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir, lögfræðingur, Seltjarnarnesi
- Ásgeir Einarsson, stjórnmálafræðingur, Hafnarfirði
- Erling Ásgeirsson, fv. formaður bæjarráðs, Garðabæ
- Erna Nielsen, fv. forseti bæjarstjórnar, Kópavogi