Á aðalfundi Landsvirkjunar sem fram fór í dag var kjörin ný stjórn fyrirtækisins til eins árs. Nýr stjórnarformaður Landsvirkjun er Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst.  Hún tekur við af Ingimundi Sigurpálssyni.

Aðrir í stjórn Landsvirkjunar eru:  Sigurbjörg Gísladóttir, efnafræðingur við Umhverfisstofnun, varaformaður,, Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Póstsins, Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi og Stefán Arnórsson, prófessor við Háskóla Íslands.

Úr stjórn gengu Gylfi Árnason verkfræðingur og Jóna Jónsdóttir viðskiptafræðingur.

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru:  Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands  Birgir Jónsson, jarðverkfræðingur við Háskóla Íslands  Huginn Freyr Þorsteinsson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri  Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur við Háskólann á Akureyri  Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, bóndi á Egilsstöðum