Bryndís Hrafnkelsdóttir hefur tekið sæti í aðalstjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf., að því er fram kemur í tilkynningu í Kauphöll. Bryndís tekur þar með sæti Elínar Jónsdóttur, fyrrum stjórnarformanns, en eins og VB.is greindi frá fyrir skömmu hefur Elín sagt sig úr stjórnum TM og Icelandair Group frá og með deginum í dag. Hún var ráðin framkvæmdastjóri VÍB, eignastýringar Íslandsbanka nýverið.

Varaformaður stjórnarinnar, Örvar Kærnested, verður hér eftir formaður.