Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins en hún tekur við af Kristínu Eysteinsdóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.

Brynhildur lauk BA námi í leiklist frá Guildhall School of Music and Drama í Englandi en áður hafði hún lokið BA gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands. Einnig nam hún leikritun við Yale School of Drama í Bandaríkjunum.

„Á þessum vatnaskilum í mínu lífi þakka ég af auðmýkt það traust sem stjórn Leikfélags Reykjavíkur nú sýnir mér. Það er með gleði sem ég tek við keflinu af Kristínu Eysteinsdóttur, sem hin síðustu ár hefur stýrt Borgarleikhúsinu af kjarki, hlustun og sínu einstaka listræna innsæi. Það eru stórar breytingar í íslensku leikhúslífi um þessar mundir og ég lít á það sem gríðarmikið og gott tækifæri fyrir leikhúsið til að spyrna sér af krafti inn í nýja og gróskumikla tíma, þar sem gæði og gjöfult samtal verða leiðarljósið. Það er mín von að Borgarleikhúsið verði áfram sjálfsagður viðkomustaður allra landsmanna, kröftug listastofnun sem nærir, miðlar og gleður. Að þessu sögðu hlakka ég til að setja upp skipstjórahúfuna og, ásamt hinum öfluga, samstillta og flinka hópi starfsmanna leikhússins, setja á fullt stím inn í nýja framtíð,“ segir í tilkynningunni.

Brynhildur hefur verið í hópi fremstu leikhúslistamanna á Íslandi um þessar mundir. Hún hefur yfir tuttugu ára reynslu sem leikari, höfundur, listrænn ráðunautur og leikstjóri. Hún hefur starfað við Borgarleikhúsið síðastliðin átta ár. Brynhildur hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna og hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir framlag sitt til lista. Hún hefur sjö sinnum tekið á móti Grímunni – Íslensku leiklistarverðlaununum, ýmist fyrir leik í aðal- og aukahlutverkum, leikstjórn eða fyrir leikritun. Þá var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar.