Það er staðreynd að á fjórum árum hefur markaðsvirði Icelandair Group hf. (ICEAIR) tífaldast að raunvirði og staðvirt VH-hlutfall tæplega fjórfaldast. Á fjögurra ára tímabili náði Kaupþing banki hf. (KAUP) að áttfaldast að raunvirði en VH-hlutfallið lækkaði um helming. Þetta segir Brynjar Örn Ólafsson hagfræðingur í grein sem birtist í Viðskiptablaðinu.

Þar segir Brynjar að þegar komi að því að meta væntanlega breytingu á eignaverði séu til margvíslegir mælikvarðar. VH-hlutfallið (e. Priceearnings ratio) sé til dæmis notað fyrir hlutabréf. „Í bók sinni Irrational Exuberance skilgreinir Robert J. Shiller það sem hversu dýr fyrirtæki eru í hlutfalli við getu þeirra til að skila hagnaði. Það skal tekið fram að nefnarinn (hagnaður) í hlutfallinu er sögulegur á meðan teljarinn (verðið) inniheldur væntingar,“ segir hann.

Brynjar segir að sá atvinnugeiri sem hafi fengið jákvæða athygli síðustu árin tengist ferðaþjónustu. Jákvæðar væntingar leyni sér ekki á hlutabréfamarkaðnum og þá einna helst í hlutabréfum Icelandair.

VH-hlutfallið hækkað um 250% að raunvirði

„Frá því hlutafjárútboð félagsins fór fram í lok árs 2010 hefur VH-hlutfall félagsins hækkað um 250% að raunvirði (440% ef eingöngu er horft á raunbreytingu frá 3. janúar 2011 til síðastliðins þriðjudags). Hlutfallið var 14 miðað við dagslokaverð síðastliðinn þriðjudag,“ skrifar Brynjar.

Hann segir óvænt hversu lík þróun raunmarkaðsvirðis Kaupþings frá byrjun árs 2004 til júlí 2007 sé þróun Icelandair Group frá 2011 til júlí 2014. „Leiðrétt fyrir breytingu vísitölu neysluverðs hækkar virði KAUP áttfalt á þessum 883 viðskiptadögum og ICEAIR rúmlega sexfaldast. Í framhaldinu tekur að halla undir fæti hjá KAUP á meðan ICEAIR tekur flugið.“

Hann segir að raunþróun VH-hlutfallsins sé ólík milli félaganna. „Hjá KAUP fer hlutfallið úr 14 í upphafi árs 2004 niður í um 9 í júlí 2007 og helst nálægt því þar til Fjármálaeftirlitið tekur yfir rekstur félagsins. Frá upphafi árs 2011 fer hlutfallið hjá ICEAIR úr 4 í 12 í júlí 2014. Þaðan hefur hlutfallið svo haldið áfram að hækka og virðist ekkert lát á.“

Grein Brynjars má lesa í heild sinni hér.