Brynjar Már Brynjólfsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri Isavia og hefur störf nú um mánaðamótin.

Brynjar starfaði áður sem mannauðsstjóri hjá Reiknistofu bankanna (RB) og þar áður hjá Origo, bæði sem ráðgjafi í mannauðsmálum og sem verkefnastjóri umbóta þar sem hann stýrði meðal annars sameiningu Nýherja og dótturfélaga í Origo. Brynjar hefur einnig starfað við mannauðsmál hjá Landsvirkjun og Landsbankanum.

Hann lauk B.A. gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2006, M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2009 og er að ljúka MBA gráðu við Háskólann í Reykjavík núna í vor. Brynjar hefur setið í stjórn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi og var formaður félagsins frá 2018 til 2020.