Brynjar Steinarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fasteignafélagsins KSK eigna ehf. og mun hann taka við starfinu í apríl af Skúla Þ. Skúlasyni sem gengt hefur starfinu samhliða stjórnun samsteypu Kaupfélags Suðurnesja, sem KSK eignir eru innan.

© Aðsend mynd (AÐSEND)
Brynjar er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Kristiansand auk þess að vera útskrifaður sem kerfisfræðingur frá Viðskiptaháskólanum í Árósum. Hann var skrifstofustjóri Kaupfélags Suðurnesja og starfaði við endurskoðun hjá Ernst & Young í Noregi.  Brynjar var aðstoðarframkvæmdastjóri Samkaupa hf og rak eigið ráðgjafarfyrirtæki um tíma.

Brynjar hefur verið framkvæmdastjóri fjármálsviðs Samkaupa frá 2010. KSK eignir ehf eiga og reka um 30 fasteignir um allt land með um 30 þús. fermetra í útleigu.