Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og annar varaforseti þingsins setur ofan í þá þingmenn „bæði núverandi og fyrrverandi“ sem kvarta undan vinnutíma í þingstörfum á facebook síðu sinni.

Þó Brynjar nefnir engan í pistli sínum má leiða líkur að því að þar sé hann að vísa til fyrrum þingmannsins og núverandi borgarfulltrúans Pawel Bartozsek sem var í ítarlegu viðtali í síðasta Viðskiptablaði þar sem hann tjáði sig meðal annars um hve þingstarfið hafi verið ófjölskylduvænt.

„Eins og að eðli starfsins hafi verið þeim hulið þegar þeir buðu sig fram. Svona svipað að þeir sem réðu sig í vaktavinnu kæmi á óvart að þurfa að vinna stundum á kvöldin og gætu því ekki alltaf lesið fyrir börnin fyrir svefninn,“ segir Brynjar, sem jafnvel færir rök fyrir því að starfið sé fjölskylduvænna en gengur og gerist.

„Þótt vissulega mætti skipuleggja störfin í þingsal betur þá eru þau samt ekki nema brot af störfum þingmanns. Þessir örfáu þingfundir á kvöldin og stundum inn í nóttina gerir starfið, ef starf skyldi kalla, ekki ófjölskylduvænt. Svo hafa þingmenn meira svigrúm en launþegar almennt og mætti í raun segja að starf þingmannsins sé fjölskylduvænna en gengur og gerist.“

Brynjar nefnir einnig aukinn stuðning við þingmenn og að þingstarfið sjálft sé bara brot af störfum þingmanna.

„En stjórnmálamaður sem eitthvað vill leggja til málanna er þó alltaf í vinnunni og valdi það hlutskipti.“