Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, tilkynnti nýrri stjórn Exista, eiganda Skipta, í dag að hann segði starfi sínu lausu frá og með deginum í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skiptum en jafnframt kemur fram að Brynjólfur mun, að ósk eigenda, stýra félaginu uns ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið.

Brynjólfur tók við starfi forstjóra Símans árið 2002 og við stofnun Skipta árið 2007 varð hann forstjóri þess félags.

„Það hefur verið spennandi verkefni að stýra Skiptum og Símanum á tímum mikilla breytinga en ég tel rétt að láta af störfum nú,“ segir Brynjólfur í tilkynningunni.

„Ástæðan er fyrst og fremst sú að nú hafa orðið kaflaskil hjá fyrirtækinu, nýir eigendur hafa tekið við og ég tel við hæfi að ný stjórn hafi óbundnar hendur við að skipa málum fyrirtækisins. Þá er sú staða komin upp að bankarnir eru í senn kröfuhafar félagsins og eigendur og þurfa því að stíga viðkvæman línudans við að gæta í senn hagsmuna banka og velferðar fyrirtækisins. Það er von mín og trú að þeir takist á við það verkefni af heilindum og fagmennsku.“