Brynjólfur J. Baldursson hefur verið ráðinn forstöðumaður fjármálafyrirtækja og fagfjárfesta sem er nýtt svið sem tilheyrir fjárfestingarbankasviði MP banka. Brynjólfur hefur starfað hjá mp banka frá miðju ári 2011.

Áður var hann forstöðumaður hjá Landsbréfum og Landsbanka Íslands og framkvæmdastjóri hjá Heritable Bank í London. Brynjólfur er með Bsc í fjármálum og markaðsfræði frá Coastal Carolina university og með próf í verðbréfamiðlun.