Ákvörðun kjararáðs um að hækka laun nokkurra forstöðumanna ríkisstofnana og nefndarformanna um tugi prósenta umfram hækkanir annars launafólks er mótmæl harðlega af BSRB.

Ekki í samræmi við SALEK-samkomulagið

Segir í fréttatilkynningunni að með ákvörðununum haldi kjararáð áfram að hækka laun hæst launuðustu starfsmanna ríkisins umfram þær hækkanir sem annað launafólk hefur fengið hafa verið í samræmi við SALEK-samkomulagið.

Sem svar við þeim rökstuðningi kjararáðs að gríðarlega mikið álag sé í störfum þessara starfsmanna, segir í yfirlýsingunni:

„Það er engin ástæða til að efast um að álag í starfi þessara ríkisforstjóra og nefndarmanna hafi aukist á undanförnum árum. Það sama á auðvitað við um aðra stóra hópa á vinnumarkaði sem hafa upplifað gríðarlega mikið álag í starfi árum saman eftir niðurskurð og samdrátt. Þessum hópum hefur ekki staðið til boða að fá tuga prósenta launahækkanir.“

Launahækkanir afturvirkar um meira en ár

BSRB telur að ákvörðun kjararáðs um að hækka laun vel launaðra ríkisforstjóra um tugi prósenta, afturvirkt í ár eða meira, sé í engu samræmi við samkomulag um endurbætur á vinnumarkaðsmótelinu, sem aðilar vinnumarkaðarins, þar með talið ríkið, hafi gert.

„Það gengur ekki að aðeins hluti launafólks eigi að taka þátt í því að byggja hér upp nýtt vinnumarkaðskerfi. Aðilar vinnumarkaðarins hafa gert með sér rammasamkomulag sem átti að koma í veg fyrir að einstakir hópar hækkuðu meira en aðrir, sem kallar alltaf á kröfu um leiðréttingar. Þessi hækkun ríkisforstjóra er langt umfram það samkomulag og því engin leið að hægt sé að sætta sig við hana,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB.

“Þessi mikla hækkun hjá hópi sem hefur haft mjög góð laun eykur á ójöfnuð í samfélaginu og verður ekki án afleiðinga. Hún kallar augljóslega á að fleiri hópar fái leiðréttingu á launum vegna mikils álags. Kjararáð hefur sett ákveðið fordæmi með ákvörðunum um tuga prósenta hækkanir, fyrst fyrir ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra ráðuneyta, og nú fyrir forstjóra nokkurra ríkisstofnana. Til þess fordæmis hljótum við að leita þegar kemur að því að sækja sambærilegar hækkanir fyrir annað launafólk sem upplifað hefur aukið álag í starfi.“