Fallið hefur verið frá samningi þrotabús BT verslana ehf. og Haga Invest ehf. um kaup Haga Invest ehf. á verslunum og viðskiptavild tölvuverslana BT sem gerður var þann 20. nóvember síðastliðin.

Þett er gert vegna athugasemda sem komið hafa fram af hálfu Samkeppniseftirlitsins að því er segir í tilkynningu frá skiptastjóranum Helga Jóhannessyni hrl. Þrotabúið mun nú taka við eignunum að nýju og auglýsa til sölu. BT rekur nú tvær verslanir, í Smáralind og á Akureyri.