Hér á landi eru gefin út tvö stór veiðiblöð. Annars vegar Veiðimaðurinn, sem gefið er út af Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og hins vegar Sportveiðiblaðið, sem Gunnar Bender ritstýrir. Í síðustu viku var útgáfudagur hjá báðum þessum blöðum og svo ótrúlega vildi til að Bubbi var á forsíðu Sportveiðiblaðsins og fyrrverandi eiginkona hans Brynja Gunnarsdóttir prýddi forsíðu Veiðimannsins.

Blöðin eru bæði mjög vegleg. Útgáfufélagið Heimur gaf Veiðimanninn út í nokkur ár en í ár tók SVFR alfarið við útgáfunni. Miklar breytingar eru á útliti blaðsins, sem hefur mjög smekklega verið fært aftur til fyrra horfs.