Alp ehf. umboðsaðili Budget á Íslandi, fékk nýverið afhent markaðsverðlaun frá Budget international fyrir besta markaðsstarf ársins í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Fyrirtækið hefur tvöfaldað umsvif sín eftir að nýir eigendur komu til skjalanna sem eflir vægi viðurkenningarinnar til muna. Samkvæmt Vilhjálmi Sigurðssyni, sölu- og markaðsstjóra Budget á Íslandi, eru verðlaunin mikil og góð staðfesting á að fyrirtækið stefni í rétta átt.

Í dag er ALP Budget á Íslandi stærsta bílaleigan hérlendis. Budget starfar á 11 stöðum á landinu og var með um 1300 bíla til útleigu í sumar.

Budget á Íslandi tók upp nýja verðstefnu í byrjun þessa árs og vill Vilhjálmur meina að árangurinn á árinu og hin mikla viðurkenning frá Budget international, sé mikið til þeirri ákvörðun að þakka.