Berkshire Hathaway Inc., mun á næstu misserum koma til með að kaupa bandaríska tryggingafyrirtækið Medical Liability Mutual Insurance Co., en það sérhæfir sig í tryggingum fyrir heilbrigðisstarfsmenn. Líklegt er að Buffett muni þurfa að greiða rúma 1,8 milljarða fyrir félagið.

Áætlað er að kaupin muni fara í gegn á þriðja ársfjórðungi 2017. MLMIC á sér langa sögu og hefur selt sérhæfðar tryggingar í meira en 40 ár. Tryggingar hafa lengi vel spilað stórt hlutverk í rekstri Berkshire Hathaway, en fyrirtækið er nú þegar einn stærsti tryggingasali heims.