Senn styttist í að sprengt verði í gegnum síðasta haftið í Siglufjarðarlegg Héðinsfjarðaganga. Á mánudagsmorgun var búið að bora 3.317 metra af þeim 3.700 metrum sem þessi göng verða. Í síðustu viku voru sprengdir 50 metrar og með sama áframhaldi verður sprengt í gegn um miðjan mars.

Í göngunum frá Ólafsfirði í Héðinsfjörð var búið að sprengja 2.640 metra um helgina af þeim 6.900 metrum sem göngin verða. Í heild er því búið að bora og sprengja 5.777 metra, eða um 54,6% ef 10,6 kílómetra heildarlengd ganganna.