Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í morgun á beiðni bráðabirgðastjórnar VBS fjárfestingabanka um að skipa slitastjórn yfir bankann.

Í hana sitja hæstarréttarlögmennirnir Hróbjartur Jónatansson og Þórey S. Þórðardóttir, og Friðbjörn Björnsson, löggiltur endurskoðandi, skipuð til starfa í slitastjórn VBS fjárfestingabanka hf.  Hrjóbjartur var einnig formaður bráðabirgðastjórnar bankans sem var skipuð í byrjun mars síðastliðins.

Allir sjóðir VBS eru tómir og ekki voru til fé til að greiða starfsmönnum laun fyrir marsmánuð.