Veitingastaðnum Dill, eina íslenska veitingastaðnum sem hefur fengið Michelin-stjörnu, hefur verið lokað. Morgunblaðið greindi fyrst frá.
Rekstrarfélagið sem rak veitingastaðinn Dill og veitingastaðinn Systur að Hverfisgötu, hefur, samkvæmt óstaðfestum heimildum, verið tekið til gjaldþrotaskipta. Ekki náðist í eigendur staðanna við vinnslu fréttarinnar.